
MANNVIRKJAMÁL
lögmannsstofa

Lögmaður
Ásta Sóley Sigurðardóttir
Ásta Sóley er lögmaður með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum.
Ásta hefur víðtæka þekkingu á skipulags- og mannvirkjamálum og hefur sérhæft sig í stjórnsýslu mannvirkjamála, regluverki brunaöryggis og slökkviliðamála, rafmagnsöryggis og CE-merkingu og markaðseftirliti með byggingarvörum.
Undanfarin ár hefur hún sinnt sérhæfðri ráðgjöf og fræðslu, bæði innan stjórnsýslunnar og til fagaðila, auk þess að kenna skipulagslöggjöf í meistaranámi skipulagsfræða, mannvirkja-löggjöf og ábyrgð fagaðila í Meistaraskólanum og að kenna námskeið fyrir byggingarstjóra hjá Iðunni, fræðslusetri, auk fleiri námskeiða þar.
Þá hefur hún veitt einstaklingum og fagaðilum ráðgjöf og sinnt hagsmunagæslu í skipulags- og mannvirkjamálum, bæði utan dómstóla og innan, auk þess að hafa farið með fjölda mála fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Ásta hóf feril sinn hjá JP Lögmönnum árið 2008 en færði sig fljótlega yfir í stjórnsýsluna er hún hóf störf hjá Varnarmálastofnun. Hún hefur m.a. starfað sem yfirlögfræðingur Mannvirkjastofnunar, lögfræðingur á skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar, hjá kærunefnd húsamála og hjá Ríkisendurskoðun sem sérfræðingur í stjórnsýsluendurskoðun.

Lögmaður
Hrafnhildur Guðjónsdóttir
Hrafnhildur er lögmaður með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum.
Sérhæfing Hrafnhildar er fyrst og fremst á sviði eignarréttar, skipulags- og mannvirkjamála, samningaréttar, stjórnsýsluréttar og eignaumsýslu.
Hún hefur mikla reynslu af ráðgjöf og úrlausn ágreiningsmála í tengslum við fasteignaréttindi og hefur sinnt hagsmunagæslu og komið að úrlausn ágreiningsmála þeim tengdum m.a. fyrir byggingaraðila, fasteignaeigendur og húsfélög.
Meðal helstu verkefna Hrafnhildar má nefna hagsmunagæslu í skipulags- og mannvirkja-málum, landamerkjamálum, eignarnáms-málum, málum er varða galla á fasteignum, húsaleigumálum og húsfélagamálum.
Hrafnhildur hóf feril sinn innan stjórnsýslunnar, einkum á sviði eignaréttar, meðal annars hjá Óbyggðanefnd. Þá var hún aðstoðarmaður dómara hjá Landsrétti 2018-2023. Síðustu ár hefur hún verið í sjálfstæðum rekstri, bæði í fyrirtækjarekstri tengdum eignarhaldi og útleigu fasteigna og umsjón með rekstri fjöleignarhúsa og sem sjálfstætt starfandi lögmaður.
Hafðu samband!
Sendu okkur tölvupóst á fyrirspurn@mannvirkjamal.is og við getum hjálpað þér að meta næstu skref eða hvaða möguleikar eru í stöðunni.

