Mannvirkjamál lögmannsstofa
Aftur í fræðslu

Hvað er sanngjörn húsaleiga?

Fræðsla

Með nýlegri breytingu á húsaleigulögum eru sett viðmið um sanngjarna og hæfilega húsaleigu. Þá er leigusölum nú skylt að skrá leigusamninga.

Hávær umræða hefur verið undanfarin ár um að nauðsynlegt sé að setja skorður á leiguverð, þak á fjárhæð leigu eða einhvers konar "leigubremsu". Samkvæmt lögum til breytinga(opnast í nýjum glugga) á húsaleigulögum er nú hægt að bera undir kærunefnd húsamála(opnast í nýjum glugga) hvort húsaleiga - eða hækkun leigu - sé sanngjörn. Breytingin var samþykkt á Alþingi 16. desember sl.

Ekki þykir líklegt að þessi breyting komi til með að stemma hækkun á leiguverði af en það verður áhugavert að sjá hvað kemur til kasta kærunefndarinnar og hvernig hún mun taka á því. Líklegast er þó að kærunefndin muni einungis beita sér ef um mjög óeðlilega hækkun leiguverðs er að ræða. Ekki getur talist mjög raunhæft eða líklegt að fólk geri leigusamning og rjúki svo beint til að kæra um leiguverðið.. eða hvað?

Hvað telst sanngjarnt og eðlilegt?

Í húsaleigulögum(opnast í nýjum glugga) er nú þegar að finna ákvæði um að leiganda og leigusala sé frjálst að semja um húsaleigu en að hún skuli vera sanngjörn og eðlileg. Hvað nákvæmlega geti talist "sanngjarnt" og "eðlilegt" hefur ekki beint legið fyrir hingað til og engin viðmið um það að finna í lögunum. Með þessari breytingu á lögunum er nú kominn vísir að slíku viðmiði; nú skal líta til:

  • markaðsleigu sambærilegs húsnæðis og almenns húsnæðiskostnaðar
  • staðsetningu, gerðar og ástands húsnæðis
  • endurbóta, breytinga og viðhalds þess og hvort það hafi verið framkvæmt af hálfu eiganda eða leigjanda

Kærunefndin getur þannig ákveðið að leigufjárhæð sé ósanngjörn og að endurgreiða skuli ofgreidda leigu samkvæmt þessu mati - eða draga "skuld" leigusalans frá framtíðarleigugreiðslum leigjanda.

Við skulum vona að kærunefndin sé nú þegar byrjuð að auglýsa eftir fleira starfsfólki...

Skylda til að skrá leigusamninga

Sú breyting var einnig gerð á lögunum að þeir leigusalar sem hafa atvinnu af útleigu íbúðarhúsnæðis, þ.e. leigja út fleiri en tvær íbúðir, skulu nú skrá alla leigusamninga í húsnæðisgrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Upphaflega átti þetta að gilda um alla leigusamninga en ákvæðinu var breytt í meðförum þingsins.

Leigusamninga skal skrá innan 30 daga frá undirritun samnings. Hafi samningur ekki verið skráður við afhendingu húsnæðis er leigjanda sjálfum heimilt að skrá samninginn í húsnæðisgrunninn. Ef leiguverð breytist á samningstíma skal leigusali einnig skrá það innan 30 daga.

Hér(opnast í nýjum glugga) er hægt að skrá leigusamning á leiguskrá í húsnæðisgrunni Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verður frá 1. janúar 2024 heimilt að sekta þá leigusala sem ekki skrá leigusamninga í húsnæðisgrunninn við útleigu húsnæðis. Slíkar stjórnvaldssektir geta numið frá 10.000 kr. til 1.000.000 kr. eftir fjárhag viðkomandi leigusala.

Aftur í fræðslu

Sérhæfð lögfræðiráðgjöf

Spurningar um efnið?

Hafðu samband ef þú vilt ráðgjöf um málefni sem tengjast þessari grein eða öðrum sérsviðum stofunnar.

Hafa samband