Mannvirkjamál lögmannsstofa
Fræðsla, greinar og námskeið hjá Mannvirkjamáls lögmannsstofu

Mannvirkjamál lögmannsstofa

Fræðsla, greinar og námskeið

Um fræðsluna

Mannvirkjamál leggur áherslu á að miðla þekkingu á sviði skipulags- og mannvirkjamála og gera flókin lögfræðileg og stjórnsýsluleg álitaefni aðgengileg og hagnýt fyrir þá sem starfa á sviðinu.

Hér má finna fræðsluefni, greinar og umfjöllun um lög og reglur sem varða mannvirki, skipulag og stjórnsýslu, auk frétta og greina sem birtar hafa verið á öðrum vettvangi. Þá bjóðum við upp á sérhæfð námskeið, fyrirlestra og fræðslu fyrir fagaðila, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra sem þurfa að takast á við þessar reglur í starfi sínu.

Fræðslan byggist á áralangri reynslu af lögfræðilegri ráðgjöf, stjórnsýslu, kennslu og stefnumótun á sviði mannvirkjamála. Áhersla er lögð á að tengja saman löggjöf og framkvæmd – að útskýra ekki aðeins hvað reglurnar segja, heldur einnig hvernig þær nýtast í raun og hvaða áhrif þær hafa á ábyrgð, ákvarðanatöku og dagleg störf þeirra sem koma að mannvirkjagerð og skipulagsmálum.

Fræðslan tekur meðal annars til

  • skipulagsmála og skipulagslöggjafar
  • mannvirkjalöggjafar og byggingarreglugerðar
  • stjórnsýslu mannvirkjamála
  • ábyrgðar og hlutverka aðila í mannvirkjagerð
  • byggingarleyfisferla og eftirlits
  • þvingunarúrræða og úrlausnar ágreiningsmála
  • CE-merkinga og markaðseftirlits með byggingarvörum
  • eldvarna og slökkviliðsmála
  • gæðastjórnunarkerfa og faglegs eftirlits
  • málefna húsfélaga
  • nýrrar löggjafar og breytinga á regluverki
  • annarra hagnýtra álitaefna sem tengjast skipulagi, mannvirkjum og stjórnsýslu

Skoðaðu fræðsluefnið hér að neðan eða kynntu þér þau námskeið og þá fræðslu sem Mannvirkjamál býður upp á.