Mannvirkjamál lögmannsstofa

Sérhæfð lögfræðiráðgjöf
í skipulags- og mannvirkjamálum

Mannvirkjamál lögmannsstofa
Hafa samband

Um stofuna

Mannvirkjamál lögmannsstofa var sett á fót árið 2022 og sérhæfir sig í ráðgjöf, hagsmunagæslu, greiningu og fræðslu á sviði skipulags- og mannvirkjamála

Stofan veitir ráðgjöf á víðtæku sviði skipulags- og mannvirkjamála, eignarréttar og í öllum fasteignatengdum ágreiningi, þ.á m. vegna lóða-og jarðamála, byggingarleyfa, framkvæmdaleyfa, byggingarreglugerðar, byggingarvara og CE-merkinga, gallamálum, húsaleigumálum, húsfélagamálum og vegna frístundalóða. Þá sinnum við hagsmunagæslu vegna ágreinings hvort sem er fyrir dómi eða á stjórnsýslustigi.

Lögmenn stofunnar veita ennfremur ráðgjöf til stjórnvalda, m.a. í formi greininga og álitsgerða, samningu lagafrumvarpa eða athugasemda við slík, og stjórnsýsluráðgjafar vegna verklags og hlutverka byggingar- og skipulagsfulltrúa sveitarfélaga. Mannvirkjamál leggur áherslu á heiðarleika, vönduð vinnubrögð og skilvirka þjónustu. Við bjóðum upp á faglega og sérsniðna ráðgjöf þar sem hagsmunir viðskiptavina eru alltaf í forgrunni.

Sérþekking, yfirsýn og traust ráðgjöf — fyrir einstaklinga, atvinnulíf og stjórnvöld.

Þjónusta

Helstu þjónustusvið

Sjá alla þjónustu

Skipulags- og byggingarmál

Ráðgjöf og hagsmunagæsla vegna leyfa, skipulags, byggingarheimilda og stjórnsýslu mannvirkjamála.

Nær yfir

Byggingarleyfi · Framkvæmdaleyfi · Skipulagsmál · Deiliskipulag · Kærur til úrskurðarnefnda

Fasteignir, gallamál og ágreiningur

Aðstoð vegna fasteignatengdra ágreiningsmála, galla, húsaleigu, húsfélaga og eignarréttinda.

Nær yfir

Fasteignaréttur · Gallar á fasteignum · Húsaleiga · Húsfélagamál · Landamerkjamál

Byggingarreglugerð, öryggi og byggingarvörur

Sérhæfð ráðgjöf um byggingarreglugerð, öryggiskröfur, CE-merkingar og byggingarvörur.

Nær yfir

Byggingarreglugerð · CE-merkingar · Byggingarvörur · Brunavarnir · Rafmagnsöryggi

Fræðsla

Fræðsla og námskeið

Greinar, námskeið og uppfærslur tengdar sérsviðum stofunnar.

Skoða fræðslu

Hvað er sanngjörn húsaleiga?

Með nýlegri breytingu á húsaleigulögum eru sett viðmið um sanngjarna og hæfilega húsaleigu. Þá er leigusölum nú skylt að skrá leigusamninga.

Starfsfólk

Lögmenn stofunnar

Sjá starfsfólk

Sérhæfð lögfræðiráðgjöf

Sendu okkur fyrirspurn

Sendu okkur tölvupóst á fyrirspurn@mannvirkjamal.is og við getum hjálpað þér að meta næstu skref eða hvaða möguleikar eru í stöðunni.

Hafa samband