
Hrafnhildur er lögmaður með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum. Sérsvið hennar eru eignarréttur, skipulags- og byggingaréttur, fasteignakauparéttur, samningaréttur, stjórnsýsluréttur og eignaumsýsla.
Sérhæfing Hrafnhildar er fyrst og fremst á sviði eignarréttar, skipulags- og byggingaréttar, samningaréttar, stjórnsýsluréttar og eignaumsýslu.
Hún sérhæfir sig í ráðgjöf og úrlausn ágreiningsmála í tengslum við fasteignaréttindi fyrir einstaklinga og lögaðila, hvort heldur fasteignaeigendur, húsfélög eða byggingaraðila. Meðal helstu verkefna má nefna ráðgjöf og hagsmunagæslu í skipulags- og mannvirkjamálum, landamerkjamálum, eignarnámsmálum, málum er varða galla á fasteignum, húsaleigumálum og húsfélagamálum. Hrafnhildur hefur jafnframt réttindi til að gera eignaskiptayfirlýsingar.
