Mannvirkjamál lögmannsstofa
Mannvirkjamál lögmannsstofa

Mannvirkjamál lögmannsstofa

Um okkur

Stofnuð 2022

Stofan var stofnuð árið 2022 og hefur frá upphafi veitt sérhæfða lögfræðiráðgjöf á sviði skipulags- og mannvirkjamála. Við þjónustum einstaklinga jafnt sem lögaðila og höfum í gegnum tíðina veitt sveitarfélögum, ráðuneytum og öðrum stjórnvöldum ráðgjöf á grundvelli sérhæfingar stofunnar.

Sérsvið stofunnar eru á sviði skipulags- og byggingaréttar, eignaréttar, samningaréttar og stjórnsýsluréttar. Við höfum víðtæka reynslu af ráðgjöf og hagsmunagæslu í framangreindum málaflokkum, þ. á m. í tengslum við stjórnsýslukærur, málsmeðferð fyrir úrskurðarnefndum og æðri stjórnvöldum og rekstri dómsmála.

Við leggjum ríka áherslu á að miðla þekkingu okkar áfram. Stofan býður upp á hagnýt námskeið, fyrirlestra og sérsniðna fræðslu sem mætir ólíkum þörfum fagaðila, opinberra stofnana og sveitarfélaga.

Gildi okkar

Heiðarleiki og traust

Við leggjum ríka áherslu á opið og heiðarlegt samband við viðskiptavini okkar með traust að leiðarljósi.

Vönduð vinnubrögð

Við leggjum áherslu á að veita viðskiptavinum okkar persónulega og vandaða þjónustu með faglegum metnaði, hvort sem um er að ræða einfalda ráðgjöf eða flókin lögfræðileg álitaefni.

Skilvirk þjónusta

Tími viðskiptavina er dýrmætur. Við leggjum áherslu á að veita skýrar og skilvirkar ráðleggingar svo hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir á sem stystum tíma.

Fagleg og sérsniðin ráðgjöf

Hvert mál er einstakt. Við skoðum hvert tilvik vandlega og veitum ráðgjöf sem er sérsniðin að þörfum og aðstæðum hvers viðskiptavinar.

Vantar þig ráðgjöf?

Hafðu samband við okkur til að ræða málið og meta næstu skref.

Hafa samband